Buenas dias estamos las ratas

It´s my party and I cry if I want to.....

23.01.2008 21:44:29 / svana

Heath Ledger látinn

Heath Ledger látinn!!

 

Já ég bara átti ekki til orð þegar ég las þetta á Vísi.is í dag, mig langaði til að fella tár, ég fann hvernig kökkurinn mindaðist í hálsinum enn ég kunni nú ekki við að fara leggjast í gólfið upp á tannlæknastofu og fara grenja eins og lítið barn á leiðinni í tannlæknastólinn..

 Er þjóðinn er snortinn yfir því að þessi heiti gaur hafi svift sig lífi, eða gerði hann það?? það er stóra spurninginn, allavega var mikið af svefnlyfjum þar sem hann lá eins og þyrni rós í sínum hinsta svefni.

Dó hann kanski úr Lungnabólgu, eða var hann þunglindur og framdi sjálfsmorð það er hægt að velta sér upp úr þessu endalaust!!!

Enn Heath Ledger dó aðeins 28 ára að aldri, Ungur heitur og FLottur!! hann fékk þó að deyja Frægur, Ríkur, FLottur, Flottari og SÆTUR!

 

ENN að allt öðru Ísland burstaði Ungverja þessi SÆTU strákar okkar, unnu með 8 marka mun,

Glæsilegt hjá þeim, þeir eiga allir koss skilið frá mér einn blautan"!

enn ég byð þá bara að heilsa nó að gera hjá minni við að fara slefa upp í heilt handboltalið

ha ha ha ha

yfir og út.

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 22:08:14 / rotturnar

Er verið að detta í það um helgina ?

Kv, Þórey H


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 08:28:27 / rotturnar

Svana á góðri stundu með vinkonu sinn :) VOFF VOFF VOFF !!!!!!!!!!!

Voff Voff Voff Voff Voff

 

Gleymdi líka að segja frá því að Svana okkar lenti líka á séns með Gunnari Birgis ;)           (Sorry Svana þú lást eitthvað svo vel við höggi í myndavélinni minni)

 

Það var bara helvíti gaman á árshátíðinni er það ekki ? Björg hálf

Kveðja, Þórey Harpa


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 16:00:39 / svana

Gleðileg Jól

Jæja Stelpur mínar og aðrir sem lesa þetta blogg,

 Ég vil Bara óska öllum Gleðilegra Jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir það gamla :)

Ég ákvað eð setja þessar línur bara hér því ég var orðin allt of sein í jólakortagerð og satt að segja nennti því eiginlega ekki þannig að þeir sem senu mér jólakort þá bara byð ég þá afsökunar að þau fá ekkert þessi jólinn frá mér, og sennilega ekki þau næstu heldur enn það er aldrei að vita.

Enn annars bara hlakka ég til að hitta alla á annan í jólum í svaka stuði á víkinni eins og vanalega...

og Stelpur eigum við ekki að taka eitt spila kvöld upp í sveit ? og hafa það gamann ?

 

Hafið það bara sem allra best yfir hátíðarnar

kv SVana


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 17:10:26 / rotturnar

Jááá fínt, já sæll..........

Jæja hvað segjiði þá kellur?

Ég er búin að bóka flug heim 11 des, kem semsagt samferða ma og pa, fínt að fá ferðafélaga, förum reyndar með sitthvoru flugfélaginu en það er bara hálftími á milli þannig að það skiptir ekki svo miklu máli.
Var mjög róleg síðustu helgi, tími til kominn að eiga rólega helgi, en þar síðustu helgi voru Árni og Helga hjá okkur og var þá mikið drukkið, hlegið, verslað og allt það...
Núna er ég bara að telja niður dagana, mamma og pabbi koma 7 des til okkar og við ætlum að fara á julefrokost og versla jólagjafir og einhver svoleiðis skemmtilegheit. Get ekki beðið eftir að hitta þau gömlu.

En hvað segjiði eigum við ekki að plana einhvern hitting helgina eftir að ég kem heim?? hvernig lýst ykkur á það, fagna próflokum hjá sumum og svona?

Annars er ég að fara í laufarbrauðs, súllulaði, föndurs gerð hjá Siggu á laugardaginn og svo ætlum við að elda íslenskann mat, hangikjöt og tilheyrandi, ummmmm..

Annars hef ég nú ekki mikið í fréttum fyrir ykkur mínar kæru þannig að ég og mín bjórbumba kveðjum í bili og hlakka til að sjá alla.

SKÁL........

Hilsen Þórey

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 09:59:21 / rotturnar

Handan Reykjavíkur

Sæl verið þið öll. Ég ákvað þar sem ekkert hefur gerst í blogg málunum að taka í pennann og galdra framm örfá orð.

Það er allt flott að frétta af vatninu. Hér hefur lítið verið dregið úr mjólkurkynningunum en heldur bæst í verkefnaskilin og mjög stutt í lokapróf, sem sagt nóg að gera og mætti alveg bæta nokkrum tímum í sólahringinn. Hins vegar hefur það ekki aftrað mér að fara í menningaferðir til Reykjavíkur og kíkja í undirheimana í flottum félagsskap. Ég er einmitt að setja inn myndir af nokkrum skemmtilegum atvikum á mayspacið :lol:

Þið vitið að mín er komin í jólafíling ásamt því að verða búin jólainnkaupin. Eina sem ég geri er að ég bíð eftir því að geta ráðist á jólamjólkina þegar allir jólasveinarnir sem eru búnir að dreifa sér vítt og dreift eru komnir til byggða í fjörðinn fagra. Mér heyrist að það verði ekki af verri endanum þetta árið frekar en önnur jól þar sem strax er farið að plana hitting hér og þar um ALLAR sveitir :lol: hún Gróa verður sjálfsagt komin á kreik fljótlega eftir mikla fagnaðarfundi eftir hátíðar 8|

 Fregnir frá vatninu eru fjölmargar. En í fáum orðum munu það vera

MJÓLK,,,OLÍA,,,, MJÓLK,,,, HARÐSPERRUR,,,MJÓLK,,, DANSIBALL ,, SLEI,,UR,, MJÓLK,, R..M..FRÆÐI...MJÓLK,..SÆ,,TIR,, STRÁKAR,, MJÓLK,, BRJ,,STÓRAR GELLUR,, MJÓLK OG AFTUR MJÓLK 8)

En ef þið viljið heyra meira er ekkert annað að gera heldur en að mæta á svæðið því að..

Regla númer 1.  Það sem gerist á vatninu ER á vatninu

Regla númer 2. Mjólkurkynning fer einungis framm á virkum dögum

Regla númer 3. Gin T.... er eina málið

Regla númer 4. Passa sig!!! Hér er stór fjöldskylda á ferð.

Regla númer 5. Vera opinn fyrir öllu

Regla númer 6. Mjólk er góð!! Fyrir mig og ÞIG

Regla númver 7. Sle,,kur,, Olía, Baby powder :^)

Regla númer 8. Alltaf frí gisting :P

Regla númer 9. Bömmer er alls ekki leyfilegur

Regla númer 10. Mæta á svæðið

 

Rass-peru-kveðja Ronnía Ræningjadóttir :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 17:16:42 / svana

Áskorunn tekinn

Jæjá ég ætla þá að taka þessari áskorun frá Þórey G að skrifa eina færslu...

 Þar sem vinahópurinn hefur tvístrað sér svona í allar áttir þá verur maður bara að standa sig í blogginu..

 Enn allaveg þá er nú bara voða lítið að frétta af ´mér það er bara vinna, sofa, djamma og þess háttar... sama gamla lumman mar ætlar greynilega aldrei að fara gera neitt nýtt í þessu blessaða lífi sínu, ekki það að þetta er nú ágætis líf sem að maður á he he he he

Ætla að fara austur um næstu helgi til að eiða þeirri helgi í faðmi fjölskildunnar og í hina árlegu villibráðarveislu, svo er tannlæknastofann að bjóða okkur á hótel Búðir eina helgina í Nóv og ég get nú ekki sagt að mig hlakki mikið til því að það verður gist og svo er dagskráinn ekkert nema söf allann daginn og fyrirlestrar.... það verður farið á bygðarsaf og fingurbjargarsafn þannig að ef að ykkur vantar fingurbjargir bara láta mig vita og ég get keipt fyrir ykkur :) svo er svaka dinner og það er sko kjólar eða Síðkjólar... vei vei hver vill ekki fara í svona ferð og sérstaklega þar sem ég er nú eina trippið í hópnum þær eru allar yfir 30 sem eru að vinna með mér.....

Enn hvað um það.....

Ég veit nú eiginlega ekki hvað ég á að segja meira hér inná,þar sem ég er alveg glataður Penni... Enn bara endielga að kommenta inn allir þeir sem eru alltaf að kíkja hér inn á þessa síðu að kvitta fyrir sig svo að við sjáum hverjir eru að forvitnast um okkiur Rotturnar...

HEy!! og já meðan ég man þá var ég að lesa greyn á visi.is um eitthvað félag sem heitir Rotturnar ég var að spá í að setja hana hér inn enn það var einhver meðlimur félagsins að deyja, sem er nú alltaf jafn sorglegt, enn mér fannst alveg merkilegt að það væru fleiri enn við sem myndum kalla okkur Rottunar... þar sem þetta er nú ekkert mjög aðlagandi nafn, Stelpur við ættum kasnki bara að leita þetta félag uppi og skrá okkur í það :)

Allaveg bara segi ég bless fress og verið Hress

 kv. Svansý

Og mig Hlakka alveg óstjórnlega til að við komum allar samann aftur um jólinnn og þá verður sko tjúttað og mikið gamann og mikið hlegið á Höfn :) love...

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 16:45:20 / rotturnar

Er þessi síða kannski að syngja sitt siðasta, kæru vinir???? lalalalalalalíiiii

Allt gott að frétta af mér og mínum, erum að fara ásamt Siggu Báru til Svíþjóðar, Malmö á föstudaginn í eitthvað svaka partý, vúúhúúúú....
Svo erum við að fara líka til þýskalands, berlínar helgina eftir það, einnig með Siggu Báru, ætlum að skoða okkur um þar og einnig að hitta Steffi sem var að vinna á Hala sumarið 2006.

Systkini mín æðislegu þau Árni og Helga ætla svo að koma í heimókn um miðjann nóv. og svo ætla pabbi og mamma mín æðislegu að koma í byrjun des. að hitta yndislegu dóttur sína, þannig að maður ætti nú ekki að fá heimþrá úr þessu:) Það verður gaman að fá alla í heimsókn:)

Já annars hef ég nú ekkert mikið að segja nema bara allt rosa gott, erum búin að vera á tónleikum og partýum og allt bara rosalega gaman.


SKORA Á SVÖNU SÓÐABRÓK AÐ RITA NOKKRAR LÍNUR HÉR Á VERALDARVEFINN:)

Sé ykkur hin um julen

Þórey G

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 22:24:03 / rotturnar

Frá mömmunni í hópnum

Tek alltaf áskorun :) 

Annars ekki mikið að frétta af mér. Svona fyrir ykkur sem vita það ekki þá er ég aftur komin á skólabekk eftir langa pásu. Byrjuð í viðskiptafræði í HR sem er bara mjög skemmtilegt þrátt fyrir mikið púl.

 

Aðal túttan hún Anna Viktoría stækkar og stækkar og fer sennilega bráðlega að nota brjóstahaldara í stærri númerum en mamma sín :( ! (verð ekki smá fúl ef það verður þannig) :( Annars er skvísan orðin 1 árs og byrjuð hjá dagmömmu og er aðal prakkarinn þar enda sú eina sem er farin að labba :haha:  

Annars ekki mikið að segja af manni, dagarnir einkennast af því að ég vakna, kyssi snúllurnar mínar góðan daginn, bruna í skólann og er þar fram á kvöld. Kem þá heim og borða kvöldmat sem kallinn hefur töfrað fram úr 50 ár gömlu RAFHA eldavélinni okkar, ropa, hneppi frá tölunni á buxunum og legst upp í sófa á meltuna og sofna með Fjárhagsbókhaldið í andlitinu. Mjög spennandi það, allt þess virði þó skal ég segja ykkur.

Langar orðið helvíti mikið á fyllerí og fá harðsperrur eftir trylltan dans eins og eftir ballið með Antik í Hrollaugsstöðum í sumar. DJÖFULLI var kátt á hjalla þá, maður lifandi :haha: 

annars bara,

þangað til næst,Þórey Harpa og fjölskyldan úr Kópavoginum :haha:

 

dúllan mín

Ein af aðal skvísunni ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 23:38:11 / rotturnar

Yndislegt líf!!!!!!

 

 Jæja ég ákvað að henda inn í grófum dráttum smá fregnum af mér þar sem við erum búinar að dreifa okkur fjandi vel  :) Ég er í 33 manna bekk og eru þetta allt frábærir krakkar heldur ofvirk flest en það er kannski ekkert skrítið. Fyrir mánuði vorum við vígð inná vatnið með busun og öllu tilheyrandi, meðal annars voru herbergin fyllt af gerfisnjó og sé ég ekki að ég nái honum alveg burt fyrr en fyrstalagi um jól :haha:   en þetta var gargandi snilld þar sem maður rúllaði upp á herbergi undir morgunn og voru menn mis hressir í fyrstu tímunum hehee.

 Tók svo við bakpokaferðalag þar sem var labbað yfir kjarr, mýrar og drullusvað í GRENJANDI rigningu, þegar var svo búið að tjalda og koma sér fyrir skall á stormur, tjöldin láku, vindurinn búin að feykja þeim hálfa leiðina heim þegar hringt var í björgunarsveitina og hún send eftir okkur úfffffff þvílíkt ævintýri Það tók mann nokkuð marga tíma að ná hita í kroppinn eftir þetta bull.

 Kennó kom svo á laugarvatn og heljarinnar sakvæmi troðið upp, eftir grill og svaðalegt partý var svo farið í úthlíð á ball. Sem betur fer hafði liðið vit á því að hafa þetta geim á föstudegi en ekki á þriðjudegi eins og busavígslan var :$ meiru ruglustamparnir ...en þetta er nú ekki eina gleðin hér á vatninu þar sem menn eru mjög duglegir að finna sér ástæðu til að halda gleðskap. Um helgar fer maður svo í bæinn í "afslöppun" eða  reynir það allavega.

 Þetta er frábært skóli í alla staði, maður er búin að vera með þokkalega strengi í 4 vikur þar sem maður er í íþróttahúsinu megnið af deginum. Ekki lítið gaman að vera í skóla og leika sér alla daga. Við skvísurnar á 1. ári erum með heima- og myndasíðu fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með þá eru þar settir inn helstu viðburðir sem geta verið mjög áhugarverðir  og skrautlegir á köflum heheh www.hollywoodgirls.bloggar.is Svo er bara að skella sér á vatnið við og við í heimsókn!! það er alltaf tekið vel á móti skemmtilegu fólki!!

 Stefnt er að heimsókn í fjörðinn fagra 12. -13 og 14 okt. hver veit nema maður troði bara upp teiti maður má  nú ekki detta úr æfingu!!! :D Mæli með hópferð austur þá :)

 Harðsperrukveðjur

Bára Óla

ps. Langar að skora á Hildi Ýr að henda inn færslu við tækifæri og fá smá fréttir frá danaveldi


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 19:54:18 / rotturnar

Geðveigt sæt íbúð

Jæja kæru vinir og vandamenn, þá er þetta allt að smella heim og saman hjá okkur skötuhjúunum. Fengum íbúðina 31 ágúst og hún er ótrúlega flott og góð, á 3ju hæð í mjög rólegu hverfi og geðveikt flott útsýni, erum búin að vera að versla allt inní hana. Gjörsamlega komin með gubbuna uppí háls á IKEA.

Keyptum okkur mjög flottann og GÓÐANN svefnsófa til að þeir sem hafa pantað gistingu í vetur þurfa ekki að afa áhyggjur að því að sofa á tjald dýnu:)

Svo fengum við brettið okkar á þriðjudaginn, gott að fá allt dótið sitt:haha: Reyndar ekki allt brettið því sumt hafði nú gleymst, mjög sennilega í bílskúrnum hjá pabba og mömmu, vorum að raða á brettið þar og sumir kassarnir áttu að vera eftir í rvk en alls ekki SKÓKASSINN AAAAAAAAA allir skórnir mínir, en það reddast, hringdi strax í mömmu og bað hana að snarast niðrí bílskúr og leita af kassanum heilaga, henni fannst þetta nú ekki það alvarlegt en sagðist ætla að gera það um helgina og senda mér svo kassann. Eins gott að hann sé þar.

Svo er ég bara að leita að vinnu á fullu eða kanski ekki á fullu en er allavega að leita. Ætla svo að fara til Köpen um eða eftir helgina og heimsækja Hildi og Hlyn í nýju íbúðina þeirra.

Þarf svo að fara að kaupa mér hjól með körfu, alltof þungt að halda á öllum þessum bjór labbandi, það er nú samt búð mjög nálægt okkur sem er mjög gott.

En það er allavega bara allt frábært að frétta frá okkur:P og hlökkum bara til að fá alla gestina sem eru búinir að bóka komu síma:) en ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, byð bara að heylsa öllum og hafið það gott, skora svo á hinar rotturnar að koma með færslu:)

Med venlig hilsen

Þórey Danadrottning

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 15:47:57 / rotturnar

Arhus baby

jæja tha er madur komin til Danmerkur eda til Arhus og lyst svona lika vel a. Buid ad vera grengjandi rigning en steikjandi hiti thannig ad eg er alltaf i halfgerdur vandrædum i hverju eg a ad klædast thegar eg fer ut. Faum ibudina okkar ekki nuna heldur næsta fostudag og thad verdur næs, erum buin ad labba framhja henni og okkur lyst mjog vel a hana og hverfid, svo fær madur vonandi fljotlega vinnu svo madur hafi nu efni a ad vera i henni.

Byd ad heylsa ollum, kossar og knus,  

Thorey  (glatad ad hafa ekki sinn eigin staf a lykklabordinu:evil: )

Endilega latid i ykkur heyra 


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 10:48:28 / rotturnar

Vont, Verra, Verst

Vont: Konan þín er ólétt
Verra: Hún gengur með þríbura !
Verst: Þú fórst í ófrjósemisaðgerð fyrir 5 árum

Vont: Konan þín talar ekki við þig
Verra: Hún vill skilnað!
Verst: Hún er lögfræðingur

Vont: Sonur þinn er loksins að þroskast
Verra: Hann er að dandalast með konu nágrannans
Verst: Þú líka..

Vont: Sonur þinn eyðir miklum tíma í að læra heima inní herberginu sínu
Verra: Þú finnur fjöldan allan af klámspólum inni hjá honum
Verst: Þú leikur í þeim öllum !

Vont: Þú og maki þinn ákveðið að þið ætlið ekki að eiga fleiri börn
Verra: Þú finnur hvergi smokkana
Verst: Dóttir þín tók þá

Vont: Sonur þinn er kominn með nyja kærustu
Verra: Kærastan er karlmaður
Verst: Hann er besti vinur þinn

Vont: Dóttir þín er búin að fá vinnu
Verra: Sem vændiskona
Verst: Samstarfsmenn þínir eru hennar helstu viðskiptavinir
Langverst: Hún þjénar meira á viku en þú á ári..

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 13:32:52 / rotturnar

. . . . . INTRESTING . . . . .

Nú er grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!


En svona gengur þetta víst fyrir sig!

* Frúin verslar í matinn.

* Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.

* Frúin undirbýr kjötið. 

*Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.

*Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.

Lykilatriði:


*Bóndinn setur kjötið á grillið!


* Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.


* Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.

*Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.


Annað lykilatriði:


*Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.


* Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti, ratar á borðið.


* Eftir matinn gengur frúin frá öllu.


Mikilvægast af öllu:


ALLIR þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.

Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað "frídagurinn"...og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er ómögulegt að gera konum til geðs. :^):^):^):^):^):^):^):^):^):^):^):^):^)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 09:39:55 / rotturnar

Innbú til sölu

 8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|8|

Vantar ykkur eitthvað í innbúið?

Diska, hillur, sófa, glös, borð, potta, lampa?

Endilega hafið samband ef ykkur vantar eitthvað fyrir lítinn pening!

:$Þórey - 8676631:$

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 87281
Klukkan
Dagsetning
7. febrúar 2012